SAURY (COLOLABIS SAIRA)
Saury (náskyldur geirnef sem veiðist við Íslandsstrendur af og til) er langvaxinn fiskur líkt og hornfiskar og getur orðið 40 sm að stærð en er tíðast 25 - 35 sm þegar hann er veiddur. Þessi fisktegund á heimkynni í hlýjum og heittempruðum sjó og er aðallega veidd við strendur Japan á haustin. Ársveiðin hefur verið stöðug um áratuga skeið eða þrjú- til fjögurhundruð þúsund lestir. Saury hefur hátt fituinnihald sem helst nokkuð stöðugt allt árið.* Það sem gerir hann að góðum beitufisk er hversu roð hans er sterkt. Þetta gerir það að verkum að hann losnar síður af króknum og veiðir því lengur en önnur hefðbundin beita.
Bai Xian Wu Enterprise co., Ltd. í Taiwan er eitt af stærstu fyrirtækjum heims í sölu á frystri beitu. Þeir eru aðalbyrgjar Voot sem selja þessa frábæru beitu í tíu kg pakkningum.
Fyrirtækið kappkostar að skipta einungis við trausta aðila sem selja hágæða vöru. Voot hefur trausta og persónulega þjónustu í forgrunni sem viðskiptavinir þeirra á Íslandi og Færeyjum kunna vel að meta.
Aðalbyrgjar Voot eru Bai Xian Wu Enterprise co., Ltd. í Taiwan sem er eitt hið stærsta sinnar tegundar í sínum heimshluta og bandaríska fyrirtækið Seafreeze, Ltd. sem hefur náð eftirtektarverðum árangri í heimalandi sínu og um allan heim.